Bloggsíða HHH
06.02.2010 09:06:31 / helgiorn

Úti er ævintýri!

Jæja, tæpum fjórum árum eftir að þessa heimasíða var sett á laggirnar eru dagar hennar endanlega taldir. Bjórvegurinn kominn á söluskrá og við Hafdís og Hera flutt heim til Akureyrar. HG er fluttur heim til m&p og býr í kjallaranum í leiguhúsnæðinu okkar sem er gamalt einbýlishús sem ber nafnið Fögruvellir og er í Þorpinu. Ég lauk náminu í síðustu viku og gekk það mjög vel og er nú loksins orðinn byggingafræðingur en Hafdís á eftir eitt ár í uppeldisfræði-námi sínu. Fyrri hluta þess tekur hún sem verknám á Leikskólanum Hólmasól en síðari hlutann þarf hún að taka að mestu í Horsens. Hún verður því mikið á ferðinni næsta haust en er að sjálfsögðu staðráðin í að klára námið enda búin að leggja mikið á sig fram að þessu og staðið sig svakalega vel:) Yfir og út.........

» 4 hafa sagt sína skoðun

05.01.2009 17:31:37 / hafdis

Smá færsla

 

Heil og sæl kæru vinir, af okkur er allt fínt að frétta og árið 2009 leggst bara vel í okkur. Ég (Hafdís) er reyndar búin að liggja í bælinu síðan 23 des með lungnabólgu en vonanst nú til þess að komast út núna um miðja viku þetta er orðið allveg hreint ágætt skal ég segja ykkur. Halldór Gauti var hjá okkur yfir jólin og áttum við frábærar stundir með stráknum okkur, það lá svo vel á honum og söknum við hans óendanlega mikið. En það kemur sú stund að fjölskyldan verður sameinuð á ný og hlökkum við öll til meira segja Hera pakkaóða. En hún hélt svei mér þá að hún fengi alla pakkan um jólin og mátti ekki heyrast skrjáf þá var frökenin  mætt og vildi “hjálpa” annars fékk hún nokkra pakka sjálf og var hún mjög ánægð að fá að hlaupa með þá í bælið sitt og opna í friði, enga hjálp takk ég get þetta sjálf. Við fengum frábærar gjafir og skemmtileg kort með mikið af myndum, takk kærlega fyrir okkur þið eruð yndisleg.  Helgi er enn í jólafríi og verður út þessa viku, og hef ég haft einkþjón sem stjanar þvílíkt við mig að það hálfa værið nóg. Hann hafði þó á orði að þetta væri orðið ágætt þá held ég bæði jólafríið og líka stjanið í kringum mig og öll húsverkin sem hafa lent á greyið karlinum. Annars er stefnan á að koma heim í lok jan og vera í ca viku og hlökkum við bæði til þó svo að það sé stutt síðan ég var heima síðast.

 

En þangað til farið vel með ykkur

Hilsen HJ


» 6 hafa sagt sína skoðun

31.12.2008 13:49:07 / helgiorn

Gleðilegt ár!

Bestu óskir um gleðilegt og gæfuríkt nýtt ár og

hjartans þakkir fyrir öll þau gömlu.

Njótið hátíðarinnar og verið góð hvert við annað.

Áramótakveðja frá Bjórveginum.


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.12.2008 09:43:51 / helgiorn

Komið þið sæl og blessuð

Hæ hæ, vildi bara láta ykkur vita að héðan er barasta ekkert að frétta. En það er búið að vera einhver ritstífla í gangi á heimilinu og vitum við ekki allveg hvort við ætlum að halda áfram með þessa bloggsíðu eða ekki en það er allt við það sama, nema hvað að Halldór Gauti er að koma til okkar á fimmtudaginn og hlökkum við mikið til að fá hann. Ég var á landinu góða í viku um daginn og var það ómetanlegur tími með öllu fólkinu okkar, enn og aftur takk fyrir mig þið eruð öll yndisleg. Helgi fer í próf á miðvikudaginn og er því lítið heima þessa dagana en við bara krossum fingur fyrir hann á miðvikudaginn kl 8:20 ekki satt. En eftir prófið er hann kominn í jólafrí og verður í fríi til 12 jan að mig minnir. Ég fer í jólafrí 23 des kl 16:00 og verð í frí til 5 jan dásamlegt. Annars gengur vel í verknáminu og er ég bara mjög ánægð. En eins og þið sjáið hef ég ekki frá neinu að segja nema að við höfum það fínt.

Jæja ætla að skella mér í bakstur og hlusta á jólalög og reyna að koma mér í jólagírinn þangað til næst hilsen Hafdís

» 7 hafa sagt sína skoðun

02.11.2008 12:12:55 / helgiorn

Nóvember 2008

Þessi bloggsíða er alveg að gefa upp öndina, enda dagarnir hér hverjum öðrum líkir og lítið um ævintýri þessa dagana. Við höfum það samt ósköp gott og okkur líður vel, námið gengur vel og Hera er hin hressasta. Gleymir stundum að hún er komin á sjöunda ár og leikur sér eins og smáhvolpur, sem er auðvitað bara skemmtilegt. Ég fer í lokapróf 5. annar 17. eða 18. desember og fæ því ríflegt og áhyggulítið jólafrí þetta árið en undanfarin tvö ár hef ég farið í próf í byrjun janúar. Við erum búin að setja húsið okkar til sölu, svona til að kanna markaðinn og birtist fyrsta auglýsingin af Bjórveginum í fasteignablaðinu á miðvikudaginn. Fasteignamarkaðurinn hér er afar rólegur og við erum því hæfilega bjartsýn og vitum raunar ekki hvað við gerum í framhaldinu. Við vorum farin að hugsa heim á leið í fjörðinn okkar góða, en verðum nú líkt og margir fleiri, að bíða róleg og sjá hvað verður. Hef þetta ekki lengra í bili, alltaf gaman að fá smá kvitt og kveðjur.

Venlig hilsen, Helgi Örn.


» 8 hafa sagt sína skoðun

01.10.2008 20:15:36 / helgiorn

Nýr frændi

Halló, ég vil byrja á að óska Rósu og Magga til hamingju með litla stubbinn sinn sem þau eignuðust á laugardaginn. Hann var frekar smár eða 4 merkur enda mættur dálítið fyrir tímann sá stutti. Þannig að við hér í DK sendum alla góða strauma yfir hafið og á barnaspítalann til hans. Mér skilst að hann sé skapmikill (hvaðan skildi hann nú hafa það) en af myndum að dæma er hann svolítið líkur pabba sínum algjör rúsína. Enn og aftur til hamingju, ég get ekki beðið eftir að koma heim og knúsa ykkur og sjá litla frænda. Þið standið ykkur vel öll 3.

 Við fengum gesti um síðustu helgi en Beder gengið kíkti í kaffi og með þeim voru Harpa og Kiddi gaman að fá að hitta hann. Við Halldór stóðum sveitt í eldhúsinu og bökuðum og græjuðum fyrir gestakomuna og verð ég að segja það að hann kemur á óvart drengurinn hvað bakstur varðar. En takk öll fyrir komuna.

Halldór og Sigrún eru að verða frekar leið á að gera ekki neitt og fá ekkert að gera enda er ástandið bara svipað og heima og gengi krónunnar vinnur ekki með þeim heldur, þannig að við sjáum bara til hvernig fer. Annars er allt gott að frétta af okkur hinum svo sem allt við það sama.

 Við viljum einnig senda Páli frænda hans Helga baráttukveðjur og við hugsum til þeirra á hverjum degi.

 Eins og þið sjáið þá hef ég ekki frá miklu að segja eða jú eflaust nenni bara ekki að skrifa það allt. En þangað til næst farið vel með ykkur.

 

Hilsen Hafdís


» 7 hafa sagt sína skoðun

22.09.2008 13:31:13 / helgiorn

Er eitthvað að frétta?

 

Komið þið sæl og blessuð alle sammen. Af okkur er bara fínt að frétta og gengur sambúðin við unga fólkið bara mjög vel og eru þau enn mjög dugleg að hjálpa til við hin ýmsustu verk hér í Bjórveginum, svo er bara að sjá til hvað verður síðar. Það er ekki laust við að ég sé með heimþrá af háu stigi nú  þessa dagana þar sem litla systir mín liggur á sjúkrahúsi og verður þar víst eitthvað næstu vikurnar eða þangað til barnið fæðist og er hver dagur dýrmætur í þeim efnum. Hefði þurft að komast heim og knúsa hana og Magga aðeins en ég sendi þeim bara sterka strauma yfir hafið þangað til ég kemst til þeirra, veit að þau eru í góðum höndum þarna á FSA.

Annars er lítið sem ekkert að frétta, vinnan og námið gengur sinn vanagang og ég er ekki frá því að ég eigi eftir að sakna litlu vina minna þarna þegar ég hætti í lok janúar. Þetta eru svo mikil rassgöt að ég væri til í að taka þau öll með mér heim. Ég sendi bréf í Háskólann heima og var með fyrirspurn um hvað ég fengi metið og hvort ég yfir höfuð kæmist inn og svona ef við tækjum þá ákvörðun að flytja heim næsta vor, svarið sem ég fékk var á þá leið að ég veit ekki hvað ég á að gera og er ég mjög tvístígandi og efins eitthvað ef einhver er með brilliant lausn handa mér þá endilega komdu henni til mín, þetta er svo erfitt eitthvað.

Halldór er að sækja um vinnu en það gengur frekar hægt það er hér eins og heima að það er frekar verið að fækka en hitt. En þetta skýrist allt á næstu dögum vonandi.

Sigrún er búin að sækja um í sprogskólanum og vonandi fær hún að byrja fljótlega. Hún tók sinn fyrsta golfhring með okkur á sunnudaginn og átti hún þessi líka fínu högg inn á milli, hún er natural talent í golfi. (Rósa veit best hvað um er talað hér ekki satt)

Helgi er altaf í skólanum og golfi og var frekar fastur fyrir framan sjónvarpið um helgina þar sem Ryderinn var í sjónvarpinu og svo var líka manchester leikur sýndur. En hann má eiga það að hann var þvílíkt duglegur að klippa runna og eitthvað drasl á lóðinni að það hálfa væri nóg.

Hera er að verða löt, en hún skapp samt aðeins í smá göngutúr ein og sjálf hér um götuna. En þannig er að litli nágranni okkar hann Mathias kemur oft í heimsókn og treður sér þá á milli hekksins, Hera hefur eflaust séð þessar aðferðir hjá honum og ákvað að prófa líka, eftir smá túr birtist hún svo bara aftur á tröppunum, ég beið eftir að hún hringdi bjöllunni en hún sat nú bara og beið eftir að sér yrði hleypt inn. Halldór var að spá í hvort hún væri orðin of gömul til að læra trix, það er spurning með að kenna henni á bjölluna svo hún geti látið vita þegar hún kemur heim.

Eins og þið sjáið er allt gott, og gengur vel hjá unga fólkinu.

En þangað til næst

Hilsen Hafdís


» 6 hafa sagt sína skoðun

08.09.2008 12:59:29 / helgiorn

Bloggleiði

 

Jæja þá hér koma smá fréttir af okkur hér í DK. En það er nefnilega bara þannig að það gerist ósköp lítið hjá okkur sem okkur finnst taka því að blogga um og svo er komin smá bloggleiði i okkur líka en nóg um það. Ég byrja á því að segja að á morgun koma krakkagrislingarnir okkar til og ætla að vera hjá okkur eitthvað frameftir vetri og hlökkum við MIKIÐ til að fá þá og erum að verða búin að koma öllu í stand fyrir þau, þeas kaupa nýtt rúm, nýtt sjónvarp, rýma til í skápum, kaupa fleiri handklæði ofl. Þannig að þið getið rétt ímyndað ykkur tilhlökkun okkar.

Ég er enn í verknámi og er ég á vöggustofu þeas fyrir börn frá 1-3 ára. Ég var nú ekkert alltof spennt að byrja en þetta er alveg hreint frábærlega skemmtilegt og kom mér mikið á óvart hvað starfið er fjölbreytt og skemmtilegt. En ég fékk målformuleringuna mína samþykkta og er komin vel á veg með að vinna eftir henni. (Målformulering er þau mál sem maður ætlar að vinna að og verða betri í á meðan á praktík stendur) Þarna er skemmtilegt fólk sem ég vinn með, að var tekið vel á móti mér þegar ég byrjaði og það er talað við mig og ég er spurð um álit á hinu og þessu. Það er meira en ég get sagt um skólafélagana sem varla tala við mann. Svo er nú eitt, einu sinni í mánuði kemur nuddari og nuddar allt liðið ég fór í morgun og það eru 3 ástæður fyrir því að ég fari aftur næst.

1 ástæða: þetta er frítt

2 ástæða: hrikalega fallegur nuddari

3 ástæða: Þetta er svo notalegt og svo hefur maður svo gott af þessu

Spurnig að fjárfesta bara í nuddbekk eins og sumir sem ég þekki og fá Helga til að nudda mig eftir skóla í staðinn fyrir að fara alltaf í golf. Hehe nú er ég full bjartsýn ekki satt. Svo á miðvikdaginn er ég að fara á trommunámskeið með vinnunni hlakka geggjað til. Þannig að eins og er gengur allt vel hjá mér og vona ég að svo verði áfram en tíminn er ekkert smá fljótur að líða og 31. janúar verður komin áður en ég veit af en þá líkur verknáminu. Nóg um mig.

Ég veit ekki annað en að Helga finnist skólinn sinn fínn og hann er í góðri grúppu sem og allar hinar annirnar sínar hér. En þeir eru nokkrir sem halda hópinn og vilja vinna saman og er það bara gott mál. Hann fer en mikið í golf en ég kvarta ekki því það er öllum hollt að hafa áhugamál og svo er hreyfingin góð. Ein smá saga af Helga mínum ég má alveg stundum stríða honum. En þannig var að bíllinn er búin að vera eineygður í dáltið langan tíma og skellti Helgi sér nú út til að redda málunum. Ég veit ekki alveg hvað hann skipti um margar perur en hann fór allavega 2 sinnum útá bensínstöð til að versla perur og svo átti hann líka perur í skúrnum. Hann byrjar að vesenast eitthvað þarna ofaní húddinu og spyr hvort ég vilji ekki vera hjá honum svona uppá félagsskapinn ég gafst nú upp eftir 20 mín fannst þetta ganga frekar hægt. Enn brasast karl og ekkert gerist bíllinn er enn eineygður. Eftir MJÖÖÖÖG langan tíma kemur hann inn og segir jæja þá er þetta klárt, á bifvélavirkinn ekki skilið bjór og jager. Auðvitað segir ég minna má það nú ekki vera. Þá segir hann viltu þá ekki hlaupa heim til Andersar og spyrja foreldrana hvort hann megi fá. Þá fékk hann semsagt 13 ára nágrannann til liðs við sig þessi elska. Það er víst of mikið af perum sem hægt er að skipta um í þessum líka ágæta bíl okkar og var hann ekki alveg viss hvaða pera væri farinn og hvar hún væri staðsett. Hann er nú ekki mikið fyrir bíla og þessháttar enda altaf verið með vana menn í þessu fyrir sig.

Hera hefur það gott og veit alveg að hún er númer 1 hjá okkur báðum og gerir í því að troða sér á milli okkar ef við kúrum fyrir framan sjónvarpið hún er svolítil frekja og vill hafa athyglina.

Jæja en nóg af blaðri í bili og verið svo dugleg að kommenta.

Hilsen Hafdís


» 8 hafa sagt sína skoðun

03.07.2008 16:23:24 / helgiorn

Ísland

8Góðan og blessaðan daginn, jæja þá er sólin aðeins farin að gæla við mann hér á klakanum 8). En ég kom semsagt “heim” á sunnudaginn síðasta næstum öllum að óvörum, Halldór og Sigrún vissu um komu mína en enginn annar. Svipurinn á sumum er ógleymanlegur þegar ég birtist, aldrei að vita nema ég finni uppá svona aftur en verð að fara varlega í þá hjartveiku. Búið að vera notalegt hér í Lindarsíðunni en bíð nú samt eftir Helga mínum en hann er einn af þeim óheppnu sem þarf að lenda á Egislstöðum. Veit að ef við hefðum vitað að þyrfti að lenda á Egilsstöðum hefðum pottþétt ekki valið þessa leið. Þarf að skoppast í rútu í ja allavega 3 tíma karlgreyið. Annars er ég búin að hafa það gott slappa afa með prinsinum og prinsessunni, fá að aka um í læðunni (Fordinn hans HGH), endurnýja vegabréfið mitt, fara í bankann (ekki skemmtilegt), hafa næturgesti, Aldís og Jakob gistu, sækja frænda á leikskólann, heimsækja ættingja og kíkja á sumarbústaðinn ofl og nóg eftir af fríinu hvað er betra en frí á Íslandinu góða? Annars eru ma & pa farin í útilegu þannig að ég hef kotið útaf fyrir mig fram á sunnudag. Annars kíkti ég á mömmu í skóginn í dag hún er þar með grislingana sína 2 þau Aldísi og Jakob í nýja hjólhýsinu. Þetta er fínt hús og á eftir að fara vel um þau í því. Til lykke ma & pa. Eins og þið sjáið hef ég ekkert að segja annað en ég er mætt á klakann og verð til 18 júlí og Helgi kemur á sunnudagskvöldið og verðu eitthvað fram yfir miðjan ágúst, við verðum með sama gamla gsm númerið eða 862-6864. Annars hafið það gott og verið góð við hvort annað.

Hilsen HJ


» 6 hafa sagt sína skoðun

24.06.2008 15:37:38 / helgiorn

Prófi lokið

Hæ hæ, ég er semsagt búin í prófinu gekk mjög vel og er enn í skýjunum yfir einkunninni sem ég fékk:lol:. Þannig að nú getur niðurtalning hafist v/heimferðar til Íslands, lands ísbjarnanna. Hlakka geðveikt til. Eyddi deginum semsagt í golfi með karlinum, varð nú að vera góð við hann þar sem hann er búin að vera svo skilningsríkur og góður við mig á meðan á prófundirbúningi stóð, var frekar stressuð og gekk um gólf, talaði við sjálfa mig og ég veit ekki hvað var að geggjast úr stressi. En enn og aftur tók ég karlinn í bakaríið í golfi og ég held svei mér þá að þetta hafi verið í síðasta sinn sem hann býður mér í golf. En nóg að gera framundan skóli fram að helgi og þá loksins sumarfrí til 1.ágúst en þá hefst praktík nr 2 hjá mér og verð í vöggustofu sem er hér rétt hjá kíki þangað á morgun til að sjá aðstæður. Svo er það bara tiltekt og læti þangað til við mætum á klakann.
En þangað til næst hilsen Hafdís sem er enn í skýjunum:haha:.

» 8 hafa sagt sína skoðun

12.06.2008 13:15:47 / helgiorn

Hvað er að frétta?

Það er nokkurn veginn ekkert að frétta og því lítið bloggað þessa dagana. Ég er búinn í prófi og því í fríi fram á mánudag en þá byrjar valfag sem stendur í 3 vikur. Prófið gekk vel og fengum við Flemming, grúppufélagi minn, góða einkunn. Valfagstímabilið er nú oft stresslítið og vinnudagurinn styttri en venjulegur skóladagur og því reikna ég með að geta spilað örlítið golf samhliða náminu eða mætt örlítið í skólann með golfinu, allt eftir því hvernig horft er á málið. Ég fór í golf í gær og aftur í dag og ætla á morgun. Í gær  gékk ekki vel enda lítið verið spilað í prófundirbúningnum en í dag gékk hræðilega! Einn ágætur skólafélagi minn, íslenskur, með 0,1 í forgjöf hefur gengist inn á að fara með mér á æfingasvæðið og reyna að laga sveifluna eða hreinlega að búa til nýja. En það er stundum erfitt að kenna gömlum hundi að sitja og því verður þessi meðferð forvitnileg en eitthvað verður að reyna. Eins og þið sjáið, hef ég miklar áhyggjur af þessu öllu saman og fyrir mörgum hljómar þetta örugglega hjákátlega en fyrir mér er golf ekki bara leikur!
Nóg um það.

Hafdís fer í próf þann 23. nk og lærir nú að fullum krafti og miklum dugnaði og það á eftir að standa með henni. Munnlegt próf, á dönsku, í uppeldisfræði.....eigum við að ræða þetta eitthvað?

Nú styttist í að við lendum á Akureyrinni (6. júlí) og teljum við niður dagana, við hlökkum svo til. Það er u.þ.b. ár síðan við komum síðast og því margt sem þarf að vinna upp, t.d. gæti ég trúað að Katrín Björk, Jakob Franz og Aldís Þyrí séu öll búin að bæta við sig nokkrum sentimetrum með tilheyrandi þroska. Já, það verður dásamlegt að koma "heim" og hitta fólkið sitt, vera með Halldóri Gauta og njóta lífsins, Akureyri, here we come!

Það er bannað að blogga nema nefna veðrið, hér hefur verið sól og blíða frá því apríl og ég held að úrkoman frá 1. maí sé innan við 1 mm í Horsens-hreppi. Hér er gróður allur að skrælna og grasið hætt að spretta á lóðinni okkar. Það finnst Jóni vini okkar slæmt, enda hefur hann séð um garðsláttinn í sumar (frá því fyrir páska) að einu skipti undanteknu en þá sló Magnús svili minn enda voru haldnar harðar keppnir á baklóðinni í krikket og þá verður sko flötin að vera hirt. Maggi og Rósa voru hjá okkur í vikutíma í maí og áttum við frábæra daga, eins og venjulega, grill og grín, golf, fótbolti (ManU-Chelsea) og sjálft Eurovision.

Heyrumst og sjáumst, venlig hilsen, Helgi danski.


» 12 hafa sagt sína skoðun

13.05.2008 08:32:48 / helgiorn

Sumarið er tíminn........

Heimilisfólkið á Bjórveginum er dasað (Hera meðtalin) eftir annars frábæra helgi í sumarbústað á vesturströnd Jótlands með Viðari, Sif og börnum. Veðrið lék við okkur alla helgina og fór hitinn yfir 30 gráður í forsælu og þóttu nokkrum ferðafélugunum heldur heitt en aðrir eru brunnir með vott af sólsting eftir að hafa flatmagað í sólinni. Mikið af góðum gestum bar að garði og þökkum við þeim fyrir komuna og skemmtunina þessa góðu helgi. Með smá lægni tókst okkur Viðari að troða inn einum golfhring inn í dagskrá helgarinnar, enda ekki annað hægt en að slá nokkra bolta í svona góðu veðri. Til að gera helgina enn ógleymanlegri, varð svo sá góði fótboltaklúbbur, MANCHESTER UNITED, englandsmeistari í 17. sinn eftir góðan sigur á útivelli. Leikurinn var ekki sýndur á þeim þýsku stöðvum sem í boði voru í bústaðnum en ég fylgdist með á SkyNews á milli sólbaða, stressaðari en oftast fyrr. Mér finnst ég hafi sýnt mikinn sjálfsaga að dvelja án sjónvarpsútsendingar og internetsambands á lokadegi mótsins, en kannski sýnir það bara þá miklu trú sem ég hef á mínum mönnum. Vil ég nota tækifærið og þakka þær fjölmörgu heillaóskir sem mér hafa borist af þessu tilefni.

 

Skólinn gengur sinn vanagang hjá okkur báðum og nú styttist í próf með tilheyrandi áhyggjum en blíða undanfarinna vikna hefur ekki beinlínis ýtt undir námsáhugann en við trúum því líka að námsmenn eigi að eiga sér líf eftir skóla og höfum við reynt að standa við þau stóru orð.

 

Um síðustu helgi tókum við Hafdís þátt í golfmóti á vegum Íslendingafélagsins hér Horsens og gékk það bara nokkuð vel og var alveg rosalega gaman. Við fórum svo einn léttan æfingahring í vikunni og þar sýndi Hafdís þvílíka takta að ég leit vægast sagt illa út, miðað þá ágætu ástundun sem ég hef lagt á mig í vetur til þess að reyna að ná tökum á þessari frábæru íþrótt.

 

Um síðustu helgi fórum við líka í mikið matarboð í Vejen til Flemmings skólafélaga míns og Randi konunnar hans. Við vorum boðin með 3 vikna fyrirvara af dönskum sið og stóð heimsóknin í 8 tíma. Það er skemmtilegt að fá tækifæri til að umgangast Dani og kynnast þeim á  þeirra heimavelli, þeir kunna vel að njóta lífsins.

 

Nú eru 7 vikur og 6 dagar þar til við lendum á Akureyrinni og erum við farin að hlakka mikið til að sjá fólkið okkar í blíðunni fyrir norðan. Við fáum þó smá forskot á sæluna um næstu helgi en þá koma Maggi og Rósa og verða hjá okkur í eina viku. Það verður frábært að fá þau í heimsókn, eins og alltaf, jafnvel þó að þau hafi það orðspor á sér að ferðast helst í rigningu, hvar sem í veröldinni þau fara. Kannski komumst við aðeins í golf og án efa verður grillað, spilað og spjallað eins og vera ber. Síðan horfum við að sjálfsögðu á úrslitaleik meistaradeildarinnar þann 21. nk. en þar stöndum við Rósa þétt saman með okkar mönnum á móti rússnesku mafíunni.

 

Hef þetta ekki lengra að þessu sinni en mikið væri gaman ef einhverjir nenna að kvitta á síðuna okkar, med venlig hilsen, Helgi “Wannabe Woods”.


» 16 hafa sagt sína skoðun

14.04.2008 18:29:19 / helgiorn

BLOGGEDÍBLOGG

Komið þið nú sæl og blessuð öllsömul. Þessi síða hefur gjörsamlega verið í andarslitrunum sökum, ja ætli það kallist kannski ekki bara leti á góðri íslensku. Annars höfum við ekki frá neinu að segja svosem. Allir gestir farnir heim í hversdagsleikann og heilsast vel.

Steini og María voru hjá okkur um helgina, þetta var alveg frábær helgi takk enn og aftur fyrir skemmtunina og komuna og vonandi verður hægt að draga Maríu aftur í heimsókn á Jótland, það er ekki svo slæmt, er það nokkuð?

Það er komið sumar hér hjá okkur, það er bara hver blíðviðrisdagurinn á fætur öðrum hérna og allt að byrja að iða af lífi, þeas gróður, pöddur og svona yndislegheit. Helgi er nánast alltaf í golfi, skil ekki þennan áhuga, þegar ég spyr “hvernig gekk í dag?” er alltaf sama svarið, “hræðilega, ég var lélagastur” og þá á ég að vorkenna honum alveg hrikalega og segja æji greyið kallinn þú verður bara að fara á morgun aftur og æfa þig aðeins. En það dettur mér ekki í hug því þá sæi ég hann líklegast ekkert allan sólarhringinn, eða hvað finnst ykkur?

Annars var hann óvanalega áhugasamur á stússa í eldhúsinu um daginn og finnst mér við hæfi að þið fáið að njóta þess með mér, hversu gagnlegur hann er við almenn heimilisstörf! Sjá mynd:




Skólinn gengur fínt þessa stundina og svo er bara að sjá hvað verður.  

Já og auðvitað fréttir vikunnar eru að við erum búin að panta far heim 6. júli beint á Akureyri city. Helgi verður svo í 6-7 vikur en ég í 2. Palli, Ólöf og börn ætla að vera svo yndisleg að eyða sumarfríinu sínu hér og passa Heru strokustelpu, hús og bíl. En ég kem svo og verð með þeim í viku, o! hvað ég er farin að hlakka til! Takk fyrir Palli, Ólöf og börn þið eruð bara frábær. En við komum til með að halda til í Seljahlíðinni á meðan að þau eru hér úti en ég veit svo ekkert hvar Helgi verður restina af sínu fríi bíst við að hótel mamma verði fyrir valinu. Alltaf gott að vera þar.

Annars næst á dagskrá eru 2 fermingar á föstudaginn og matarveisla í Beder, og kanski sumarbústaðaferð með Beder genginu. Bara skemmtun framundan.

En elsku Aldís frænka innilega til hamingju með sigrana á filmleikamótinu, 1 gull og 1 brons. Ég er ekkert smá stolt frænka núna skal ég segja ykkur.



Jæja nóg af blaðri í bili þangað til síðar

Hilsen Hafdís


» 8 hafa sagt sína skoðun

16.03.2008 11:23:14 / helgiorn

BLABLABLA

Góðan dag, hér er ekkert að gerast, semsagt bara þetta gamla góða.

Reyndar bíðum við spennt eftir gestunum sem við fáum um páskana og auðvitað páskaegginu frá mömmu. Planið um páskana er einfalt fara út að borða í gamlan herragarð á fimmtudagskvöldið, hafa það notalegt á föstudaginn og versla á laugardaginn og borða svo öll saman hér í Bjórveginum hjá okkur á laugardagskvöldið, og njóta þess að vera með gesti á sunnudag, ooooooooooooooo hvað ég hlakka til.

Skólinn tja ég er allavega enn að þumbast og var ákveðin í að vera fram að páskum og hugsa málið en þar sem páskarnir eru orðir þokkalega vel skipulagðir hef engann tíma til að spá í skólamál. En vorið er komið hér hjá okkur allavega er búið að vera fínasta veður hér undanfarna daga og karlinn búinn að vera ansi mikið í golfi. Hera er orðin strokustelpa, fer ekki langt en í næsta garð ef eitthvað er um að vera þar, treður sér í gegnum hekkið pínulítil smuga en netta Hera kemst allt. Já hún er frekar nett fólk heldur að hún sé enn hvolpur, sökum þess hve nett hún er og svo er hún ofurfjörug og mjög úthaldsmikil. Hún er ekkert að róast en þó er Óli fluttur en hann var sérfræðingur í æsa hana upp. Það er spurning hvort við segjum ekki bara fólki að hún sé 1 árs en ekki á 6 ári. Rétt í þessu kom Mathias litli og tjáði okkur að Hera væri í heimsókn hjá sér hefði komið í gegnum hekkið.

Bara krútt þessi strokustelpa

Í gær buðum við Ólöfu, Jóni og 6 börnum þeirra í mat, við vildum semsagt fá smá líf í kotið og fá fólk í heimsókn og spil. Heppnaðist mjög vel og var spilaður kani frameftir kvöldi og endaði spilið á því að Helgi sagði Kani og stóðst hann það. Djö...... ég er samt ekki tapsár skal ég segja ykkur.  Takk fyrir góða skemmtun kæru vinir. Dagurinn í dag ja ég veit svo sem ekki hvað við gerum en hef trú á karlinn lumi á enhverjum útpældum rúnti þar sem hann ratar svo vel og er ekki áttaviltur. Eða hvað hann býður mér með og segir svo... hvaða átt á ég að fara núna Habba mín, eða er þetta leiðin heim eða eitthvað í þessa átt hann er snillingur en ekki í ratvísi. Eins og þið sjáið er þetta bara algjört bull um ekki neitt.

Fann þessa mynda af Helga mínum svona skellti hann sér á julefrokost með skólanum. 
 
Bara flottur ekki satt?
þangað til síðar
Hilsen Hafdís


» 6 hafa sagt sína skoðun

06.03.2008 18:27:18 / helgiorn

MARS 2008

Það er greinilegt að það eru sko engir aumingjar í okkar liði og það er frábært að fá svona mörg komment á síðuna. Einhver nefndi að það ætti nú að vera hvetjandi til frekari skrifa og að einhverju leyti er það rétt. Að því tilefni sendist hér því létt fréttayfirlit frá okkur, danska settinu.

 

Nú þegar styttist í páskafrí og gestina okkar erum við að reyna að vera dugleg í vorverkunum til að við og Bjórvegurinn líti sem best út. Við erum næstum búin að klippa alla runna á lóðarmörkunum okkar, alls sennilega um 80 lengdarmetra (þar af um helmingur 2.5 m á hæð). Það á þó eftir að koma greinunum á gámasvæðið og verða það sennilega fjórar til fimm ferðir með kerruna góðu frá Óla. Það er nú ekkert óviðráðanlegt verkefni en eini gallinn er sá að þegar það er tími og veður til slíkra framkvæmda, þá er líka mjög gott golfveður!

 

Ég er búinn að ráða mig í vinnu í nokkrar vikur næsta sumar hjá Loftorku á Akureyri og reikna ég með að byrja þar í kringum 10. júli. Það verður spennandi að vita hvort að 4 annir í byggingafræðinni geti ekki komið að einhverjum notum þó svo að enn sé ekki afráðið hvaða verkefni býði mín hjá Loftorkunni.

 

Ég, ásamt nokkrum félugum hér í Horsens, erum búnir að bóka hótel og tilheyrandi fyrstu helgina í apríl, niður í Hannover í Þýskalandi. Er um að ræða þriggja daga golfferð þar sem áherslan verður á golf og skemmtun í léttri blöndu með aðal áherslu á þessa stórkostlegu íþrótt. Sveiflan er með allra besta móti þessa dagana og vonandi verður hún í jafnvægi eitthvað áfram inn í vorið.

 

Skólinn gengur sinn vanagang, ég er mest að vinna með Flemming vini mínum frá Álaborg, þriðju önnina í röð. Það líkar mér vel enda er hann einstakur snillingur og hefur hann reynst mér frábærlega frá fyrsta degi. Sem dæmi um ágæti hans, þá sækir hann mig á hverjum morgni og skutlar mér svo heim að vinnudegi loknum.

 

Hafdís er afskaplega dugleg í eldhúsinu og hefur aldrei á ævinni bakað eins oft eins á þessu tuttugasta sambúðarári okkar. Hún er búin að baka kökur og rétti, vöfflur, snúða og muffur, kleinur með Sif og það allra nýjasta til að koma út úr ofninum hennar Hafdísar er rúgbrauð. Danskt rúgbrauð er í mínum huga óætt og sakna ég stundum þess íslenska. Eins og hjá öðrum vönduðum framleiðendum lagði Hafdís áherslu á gæði fram yfir magn og því rífumst við um hvern bita. Kannski myndi einhver spyrja hvers vegna hún hendi ekki bara í aðra uppskrift? Þeim hinum sömu myndi hún örugglega svara, réttilega, að brauðið var hvorki meira né minna en í átta tíma í bakarofninum!


Um daginn skelltum við okkur á útivistarsýningu þar sem ein höllin var full af golfdóti af ýmsu tagi. En þar voru einnig allar hugsanlegar gerðir af hjólhýsum og fundum við eitt svona líka klæðskera sniðið að okkar þörfum, sjá mynd.

 Drauma hjólhýsið!

Það er mikið um afmæli í mars og því tilvalið að senda nokkrar afmæliskveðjur. Til hamingju með afmælin elsku Pabbi (59 ára þann 5.), Bjarki (2 ára í dag, 6.), Magnús (32 ára þann 7.), Sigrún (tvítug þann 11.) og Katrín Björk (5 ára þann 25).

 

Bestu kveðjur frá Bjórvegi og endilega verið árfram dugleg að kvitta á síðuna.


» 10 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 11
Klukkan